180 nöfn tengd Epstein verði birt

Ljósmynd af Ghislaine Maxwell og Jeffrey Epstein.
Ljósmynd af Ghislaine Maxwell og Jeffrey Epstein. AFP

Dóm­ari hef­ur fyr­ir­skipað að dóm­stóll í banda­ríska rík­inu New York birti nöfn 180 manns, þar á meðal fórn­ar­lömb, sam­starfs­menn og grunaða vitorðsmenn kyn­ferðis­brota­manns­ins Jef­frey Ep­stein.

Auðjöf­ur­inn Ep­stein framdi sjálfs­víg í fang­elsi árið 2019 skömmu áður en rétt­ar­höld áttu að hefjast yfir hon­um. 

Dóm­ar­inn Lor­etta Preska fyr­ir­skipaði um nafn­birt­ing­una vegna meiðyrðamáls á milli Ghislaine Maxwell, fyrr­ver­andi sam­verka­konu Ep­steins, sem var dæmd í 20 ára fang­elsi í fyrra, og Virg­iniu Giuf­fre sem sakaði þau um kyn­ferðis­brot.

Dóm­ar­inn lagði fram skjöl með mál­um um 180 manns, sem sum­ir eru und­ir dul­nefni, þar sem þess er kraf­ist að nöfn þeirra verði birt op­in­ber­lega inn­an 14 daga, eða í byrj­un janú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert