Hunter Biden, sonur Joe Bidens Bandaríkjaforseta, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir framan alríkisdómstóll í Los Angeles í dag. Er hann ákærður fyrir skattsvik.
Ákæran er níu liðum og er honum gert að sök að hafa á fjögurra ára tímabili láðst að greiða að minnsta kosti 1,4 milljónir bandaríkjadala, eða tæpar 200 milljónir króna, í skatta sem hann skuldaði fyrir árin 2016 til 2019.
Á árunum 2016 til október 2020 „eyddi stefndi þessum peningum í fíkniefni, fylgdarkonur og kærustur, lúxushótel og leiguhúsnæði, framandi bíla, fatnað og aðra hluti af persónulegum toga. Í stuttu máli, allt nema skatta hans,“ segir í ákærunni.
Það er sérstakur saksóknari David C. Weiss sem fer með málið fyrir hönd bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Ef Hunter er sakfelldur fyrir alla níu ákæruliði gæti hann átt yfir höfði sér allt að 17 ára fangelsisvist.
Hunter Biden er í öðru ótengdu máli í Delaware-ríki ákærður fyrir ólöglega byssueign en í því máli er honum er gefið að sök að hafa fært inn rangar upplýsingar á eyðublöðum sem fylgdu byssukaupunum þar sem krafist er að viðkomandi sé ekki undir áhrifum fíkniefna.
Sérstakur saksóknari David Weiss annast það mál einnig fyrir dómsmálaráðuneytið.