Fjórða manndrápsákæran vofir yfir

Búist er við því að í dag verði Rex Heuermann …
Búist er við því að í dag verði Rex Heuermann ákærður fyrir að hafa orðið fjórðu konunni að bana. AFP

Rex Heu­er­mann, sem grunaður er um að hafa orðið fjölda kvenna að bana, verður að öll­um lík­ind­um ákærður fyr­ir að hafa orðið fjórðu kon­unni að bana í dag. New York Post grein­ir frá.

Heu­er­mann hef­ur þegar verið ákærður fyr­ir að hafa orðið þrem­ur kon­um, sem all­ar unnu sem vænd­is­kon­ur, að bana. 

Bú­ist er við því að sak­sókn­ari í Su­ffolk-sýslu gefi út ákær­una í dag en Heu­er­mann hef­ur legið und­ir grun í mál­inu. 

Hvarf árið 2007

Kon­an sem hann er tal­inn hafa myrt hét Maureen Brain­ard-Barnes og var 25 ára göm­ul er hún hvarf árið 2007. 

Lík henn­ar var bundið með belti með áletr­un­inni WH eða HM. Kunna staf­irn­ir að hafa verið í eigu afa Heu­er­mann, William Heu­er­mann.

Heu­er­mann var hand­tek­inn í júlí á síðasta ári. Hann er kvænt­ur Ásu Guðbjörgu Ell­erup, ís­lenskri konu. Hún hef­ur sótt um skilnað við Heu­er­mann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert