Lýsa yfir neyðarástandi út af eiturlyfjafaraldri

Ríkisstjórinn Tina Kotek hefur lýst yfir neyðarástandi vegna fentanýl-krísunnar.
Ríkisstjórinn Tina Kotek hefur lýst yfir neyðarástandi vegna fentanýl-krísunnar. Ljósmynd/Þjóðvarðarlið Oregon

Rík­is­stjóri Or­egon-rík­is og borg­ar­stjóri Port­lands hafa lýst yfir 90 daga neyðarástandi vegna öldu dauðsfalla í Port­land af völd­um fenta­nýl-notk­un­ar.

„Landið okk­ar og ríki okk­ar hafa aldrei séð eit­ur­lyf jafn ban­vænt og ávana­bind­andi og all­ir eru að glíma við það hvernig eigi að bregðast við,“ sagði rík­is­stjór­inn Tina Kotek í til­kynn­ingu.

CNN grein­ir frá.

Árið 2020 varð Or­egon fyrsta ríkið í Banda­ríkj­un­um til að af­glæpa­væða fíkni­efni. Í kjöl­far þess hef­ur neysla fíkni­efna auk­ist og dauðsföll­um af völd­um of stórra skammta fjölgað.

Árið 2019 voru dauðsföll af völd­um ópíóðaneyslu 280 tals­ins í Or­egon en árið 2022 voru þau orðin 956.

Trygg­ir betra sam­starf hjá hinu op­in­bera

Kotek seg­ir að með því að lýsa yfir neyðarástandi verði hægt að tryggja betra sam­starf á milli aðila til að finna ein­hverja lausn á þessu risa­vaxna vanda­máli.

Að lýsa yfir neyðarástandi ger­ir borg­inni, rík­inu og sýsl­unni kleift að út­hluta fjár­magni til viðbragða við eit­ur­lyfjafar­aldr­in­um og koma upp stjórn­stöð í miðborg­inni.

Verður auk­in áhersla lögð á að ná til fíkla, koma þeim í meðferð og tryggja þeim húsa­kost.

Eins og greint hef­ur verið frá þá hafa rík­isþing­menn Demó­krata í Or­egon boðað nýtt frum­varp sem myndi gera vörslu lít­ils magns fíkni­efna aft­ur að minni­hátt­ar af­broti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert