Íranar fordæma árásina en lofa ekki hefndum

Hossein Amir Abdollahian
Hossein Amir Abdollahian AFP

Íran­ar for­dæmdu í dag árás­ir Banda­ríkja­manna í Írak og Sýr­landi en heita ekki hefnd­um. Þeir segja Banda­rík­in hafa gert „hernaðarleg mis­tök“.

Banda­ríkja­her hæfði alls sjö staði í loft­árás­um sín­um í gær­kvöldi. Árás­in var svar við dróna­árás á her­stöð Banda­ríkja­manna í Jórd­an­íu síðustu helgi, þar sem þrír banda­rísk­ir her­menn féllu. Víga­manna­sam­tök sem tengj­ast Íran lýstu árás­inni á hend­ur sér.

New York Times grein­ir frá.

Hossein Amir Abdolla­hi­an, ut­an­rík­is­ráðherra Írans, seg­ir við þarlenda miðla að árás­ir Banda­ríkj­anna séu hluti af margra ára­tuga til­raun­um Banda­ríkja­manna til að „leysa vanda­mál með því að reiða sig á vald og hernað.“ 

Bandarísku herstöðvarnar sem urðu fyrir árás vígasveita.
Banda­rísku her­stöðvarn­ar sem urðu fyr­ir árás víga­sveita. AFP

Írak­ar og Sýr­lend­ing­ar vilji „frelsa lönd sín“

Fyrr í dag hafði talsmaður ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, Nass­er Kana­ani, kallað árás­ina „önn­ur hernaðarleg mis­tök banda­rískra stjórn­valda“ og spáði því að árás­irn­ar gerðu svæðið enn óstöðugra.

Fjög­ur skot­mörk sem Banda­rík­in hæfðu eru í Sýr­landi og þrjú í Írak. Alls var skotið á 85 skot­mörk og notaði her­inn í það minnsta 125 sprengj­ur. Að minnsta kosti 23 víga­menn í Sýr­landi féllu, að sögn sýr­lensku mann­rétt­inda­vakt­ar­inn­ar.

Líb­önsku Hez­bollah-sam­tök­in, nán­ustu banda­menn Írana í Mið-Aust­ur­lönd­um, sögðu í yf­ir­lýs­ingu að árás­irn­ar sýndu að Banda­rík­in vildu auka átök­in á svæðinu, frek­ar en að draga úr þeim.

Abdolla­hi­an seg­ir að árás­irn­ar myndu aðeins gera Írak og Sýr­land staðráðnari í að „frelsa lönd sín und­an her­námi Banda­ríkja­manna“. 

Íslamska and­spyrnu­hreyf­ing­in

Íran­ar fjár­magna og vopna víga­sveit­ir víðs veg­ar um svæðið sem eru and­snún­ar áhrif­um Banda­ríkja­manna og Ísra­els­manna í Mið-Aust­ur­lönd­un­um.

Íslamska and­spyrnu­hreyf­ing­in í Írak, regn­hlíf­ar­sam­tök sjía-víga­sveita með teng­ingu við Íran, hafa lýst yfir ábyrgð á dróna­árás­inni í Jórdan­íu og Banda­rík­in hafa sakað ein und­ir­sam­tök þeirra, Kata'ib Hez­bollah, um að standa að baki árás­ar­inn­ar.

Eft­ir að Banda­ríkja­menn sögðust í vik­unni ætla að svara í sömu mynt til­kynntu Kata'ib Hez­bollah að þau hygðust fresta árás­um á banda­rísk­ar her­stöðvar og full­yrtu að ákv­arðanir sín­ar væru óháðar ír­önsk­um stjórn­völd­um.

Önnur víga­sam­tök, Harakat al-Nujaba, sem eru tal­in vera ná­inn bandamaður hernaðarafla Írana, sögðu í yf­ir­lýs­ingu að „íslamska and­spyrnu­hreyf­ing­in mun bregðast við með því sem við á, á þeim tíma og stað sem við vilj­um og það er ekki end­ir­inn.“ Þau virðast þar vitna í orð Joe Bidens Banda­ríkja­for­seta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert