Efast um fjarvistarsönnun Ásu

Ása Ellerup og börnin hennar Victoria og Christopher.
Ása Ellerup og börnin hennar Victoria og Christopher. Ljósmynd/Gofundme

Lögmaður konu sem fannst lát­in á Gil­go-strönd í Long Is­land ef­ast um að Ása Ell­erup, eig­in­kona Rex Heu­er­mann, hafi ekki verið heima hjá sér er morðin voru fram­in eins og hef­ur verið haldið fram í mál­inu.

Banda­ríska frétta­stöðin Fox News grein­ir frá því að ef að lögmaður­inn John Ray hafi rétt fyr­ir sér og að Ása hafi með ein­hverj­um hætti átt þátt í morðunum gæti þurft að fella niður dóms­málið gegn Heu­er­mann. Ása neit­ar sök. 

Shann­an Gil­bert 

Ray Tier­ney, sak­sókn­ari í Su­ffolk-sýslu, hef­ur haldið því ít­rekað fram að Ása hafi verið ut­an­bæjar er morðin sem Heu­er­mann er sakaður um voru fram­in. John Ray lögmaður dró það hins veg­ar í efa á málþingi sem hann hélt í St. John's há­skól­an­um í Qu­eens á þriðju­dag. 

Ray er lögmaður fjöl­skyldu Shann­an Gil­bert. Hún var 25 ára göm­ul er hún hvarf 1. maí árið 2010. Hvarf henn­ar leiddi til rann­sókn­ar á Gil­go-strönd þar sem ell­efu lík fund­ust.

Heu­er­mann er grunaður um fjög­ur morð, en Gil­bert er ekki þar á meðal.

Árið 2022 greindi lög­regla frá því að lík­lega hefði and­lát Gil­bert verið slys þar hún var að hlaupa nærri strönd­inni. Á upp­töku sím­tals Gil­bert við neyðarlín­una dag­inn sem hún lést heyr­ist hún segja: „Það er ein­hver á eft­ir mér.“ Lög­regl­an sagði að Gil­bert hefði hljómað tals­vert drukk­inn og ráðvillt. 

Ray sagðist einnig hafa rætt við vitni sem gæti tengt Heu­er­mann við morðið á Gil­bert og hvarfið á Kar­en Ver­gata sem sást síðast á lífi 14. fe­brú­ar árið 1996. Hend­ur og fæt­ur Ver­gata fund­ust á eyju aust­ur af Gil­go-strönd árið 1996. Það var hins veg­ar ekki borið kennsl á líkið fyrr en á þessu ári. 

Heuermann við réttarhöldin í september.
Heu­er­mann við rétt­ar­höld­in í sept­em­ber. AFP

Efi um komu­tíma á hót­el 

Bob Macedonio, lögmaður Ásu, sagði í sam­tali við Fox að ef að Tier­ney sak­sókn­ari hefði rangt fyr­ir sér gæti dóms­málið fallið um sjálft sig þar sem að þá yrði uppi efi um sekt Heu­er­mann.

Ray seg­ist hafa rætt við hót­el­stjóra sem sagði að Ell­erup og börn henn­ar hafi komið til Atlantic City seinna en rann­sak­end­ur töldu sem gæti þýtt að Ása hafi verið heima hjá sér þegar að minnsta kosti eitt morð var framið. 

Rex Heuermann var handtekinn í júlí.
Rex Heu­er­mann var hand­tek­inn í júlí. Michael M. Santiago/​Getty Ima­ges North America via AFP

Macedonio hafn­ar þess­ari skýr­ingu Ray og sendi bréf á hót­elið til að fá að vita hvaða starfsmaður gaf upp þess­ar trúnaðar­upp­lýs­ing­ar skjól­stæðings síns, ell­egar skuli starfsmaður­inn koma fram und­ir nafni reyn­ist upp­lýs­ing­arn­ar ekki rétt­ar. 

Macedonio sagði að al­rík­is­lög­regl­an, lög­regl­an og all­ir aðrir rann­sak­end­ur hefðu kom­ist að þeirri niður­stöðu að Ása og dótt­ir henn­ar Victoria hefðu ekki vitað um að Heu­er­mann hefði framið ódæðin. 

Ray sagðist einnig hafa hitt vitni sem hitti Ásu og eig­in­mann henn­ar í svo­kölluðu „sw­ing“ par­tíi árið 1996. Macedonio hafn­ar einnig þeirri staðhæf­ingu. 

Rann­saka enn öll lík­in 

Neama Rahmani, fyrr­ver­andi sak­sókn­ari í Los Ang­eles, ræddi við Fox um stöðu dóms­máls­ins en hún hef­ur eng­in tengsl við það.

Hún sagði að ef það reynd­ist rétt að Ása hefði verið viðstödd morð þá gæti það orðið til vand­ræða fyr­ir sak­sókn­ara, „en af hverju myndi sak­sókn­ari færa rök fyr­ir ein­hverju sem hann væri óviss um?“

Tierny sak­sókn­ari sagði að teymi rann­sak­enda væri enn að rann­saka öll lík­in sem fund­ust á Gil­go-strönd. 

Ása og börn henn­ar tvö hafa skrifað und­ir samn­ing við fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Peacock/​​NBC um gerð heim­ild­ar­mynd­ar um líf þeirra. Rapp­ar­inn 50 Cent er á meðal fram­leiðanda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert