Nýjar refsiaðgerðir gegn Rússum

John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna.
John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna. AFP

Banda­rík­in munu kynna nýj­ar refsiaðgerðir gegn Rússlandi á föstu­dag­inn vegna dauða stjórn­ar­and­stöðuleiðtog­ans Al­ex­ei Navalnís, sem lést í fang­elsi á föstu­dag­inn.

Fjöl­skylda Navalnís held­ur því fram að Vla­dimír Pútín, for­seti Rúss­lands, beri ábyrgð á dauða Navalnís en rúss­nesk stjórn­völd neita því al­farið.

„Banda­rík­in ætla að kynna meiri­hátt­ar refsiaðgerðapakka til að draga Rússa til ábyrgðar og bregðast við grimmu og hrotta­legu stríði sem hef­ur nú geisað í tvö ár,“ sagði John Kir­by, talsmaður þjóðarör­ygg­is­ráðsins, við frétta­menn í dag.

Banda­rík­in og banda­menn þeirra hafa beitt Rússlandi fjölda refsiaðgerða síðan Rúss­ar réðust inn í Úkraínu í fe­brú­ar 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert