Biden kallar Pútín brjálaðan tíkarson

Joe Biden hefur verið ófeiminn við að gagnrýna Vladimír Pútín …
Joe Biden hefur verið ófeiminn við að gagnrýna Vladimír Pútín opinberlega. AFP

„Við höf­um brjálaða tík­ar­syni eins og Pútín, og aðra, og við þurf­um alltaf að hafa áhyggj­ur af kjarna­vopna­átök­um, en til­vist mann­kyns staf­ar ógn af lofts­lag­inu.“

Þetta sagði Joe Biden Banda­ríkja­for­seti á fjár­öfl­un­ar­viðburði í San Francisco í gær.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Biden gagn­rýn­ir Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta op­in­ber­lega frá því hann skipaði fyr­ir um inn­rás hers síns í Úkraínu fyr­ir tveim­ur árum.

Nýj­ar refsiaðgerðir kynnt­ar

Áður hef­ur Biden kallað Pútín „stríðsglæpa­mann“ og „slátr­ara“.

Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, seg­ir um­mæli Bidens vera banda­rísku þjóðinni til skamm­ar.

Á morg­un munu Banda­rík­in kynna nýj­ar refsiaðgerðir gegn Rússlandi og á með því að bregðast við frá­falli stjórn­ar­and­stæðings­ins Al­ex­eis Navalní í rúss­nesku fang­elsi.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert