Samþykkja umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússum

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lætur Pútín heyra það.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lætur Pútín heyra það. AFP

Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, til­kynnti í dag um refsiaðgerðir gagn­vart ríf­lega 500 skot­mörk­um í Rússlandi, nú þegar tvö ár eru liðin frá því Rúss­ar gerðu inn­rás í Úkraínu. Biden heit­ir því að stöðugur þrýst­ing­ur muni stöðva stríðsvél Pútíns Rúss­lands­for­seta. 

Fjár­málaráðuneyti Banda­ríkj­anna seg­ir að þetta séu um­fangs­mestu stöku refsiaðgerðirn­ar gagn­vart Rúss­um frá því stríðið hófst. Mark­miðið er að láta rúss­nesk yf­ir­völd finna fyr­ir dauða stjórn­ar­and­stæðings­ins Al­ex­ei Navalnís, en hann lést í fang­elsi í síðustu viku. Hann var einn helsti and­stæðing­ur og gagn­rýn­andi Pútíns. 

Biden seg­ir að aðgerðirn­ar, sem eru yfir 500 tals­ins og verða kynnt­ar nán­ar síðar í dag, muni bein­ast gegn ein­stak­ling­um sem komu að því að fang­elsa Navalní. Auk þess bein­ist aðgerðirn­ar gegn fjár­mála­kerfi Rúss­lands, vopnaiðnaði og greiðslugátt­um. Þá munu þving­an­irn­ar bein­ast gegn ein­stak­ling­um í mörg­um heims­álf­um. 

Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní lést í síðustu viku.
Rúss­neski stjórn­ar­and­stæðing­ur­inn Al­ex­ei Navalní lést í síðustu viku. AFP

Pútín greiði hærra verð

„Þær munu tryggja að Pútín greiðir enn hærra verð fyr­ir árás­argirni sína er­lend­is og fyr­ir kúg­un­ina heima­fyr­ir.“

Þá seg­ir Biden að banda­rísk stjórn­völd muni setja á út­flutn­ingstak­mark­an­ir á hátt í 100 aðila fyr­ir að styðja stríðsvél Rússa í gegn­um bak­dyr. 

Banda­rík­in og banda­menn þeirra hafa samþykkt fjöl­marg­ar efna­hagsþving­an­ir og refsiaðgerðir gegn Rúss­um frá því stríðið hófst. Þeir hafa m.a. fryst fjár­muni, dregið úr út­flutn­ingi á há­tækni­búnaði og sett verðþak á rúss­nesk­an ol­íu­út­flutn­ing. 

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vla­dimír Pútín, for­seti Rúss­lands. AFP

Dregið úr hernaðarleg­um stuðningi 

Aft­ur á móti hef­ur dregið mikið úr hernaðarleg­um stuðningi Banda­ríkj­anna við Úkraínu vegna deilna á milli demó­krata og re­públi­kana á þingi. Á sama tíma hef­ur rúss­neska hern­um vaxið ásmeg­in og hann náð að sækja fram á fremstu víg­línu. 

Fram kem­ur í um­fjöll­un AFP, að reiknað sé með að hag­kerfi Rúss­lands muni halda áfram að vaxa á þessu ári, en þó hæg­ar en áður, en Rúss­ar hafa þurft að aðlaga sig breytt­um aðstæðum og treyst á viðskipti við önn­ur ríki sem til­heyra ekki Vest­ur­veld­un­um. Þá horfa menn einna helst til Kína. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert