Joe Biden Bandaríkjaforseti er enn „hæfur til starfa“ og hafa engar verulegar breytingar orðið á heilsu hans. Þetta voru niðurstöður árlegrar læknisskoðunar sem Biden gekkst undir í dag.
„Hann er áfram hæfur til að sinna skyldum sínum og mun sinna þeim skyldum án undanþága eða breytinga,“ sagði í yfirlýsingu Kevin O'Connor, læknis í Hvíta húsinu.
Biden er 81 árs gamall og ef hann nær endurkjöri í kosningunum í nóvember verður hann orðinn 86 ára þegar því kjörtímabili lýkur.
Helstu breytingar á heilsufari Bidens frá því í fyrra er að nú glímir hann við kæfisvefn og hefur þurft að gangast undir neyðartannaðgerð.