„Pútín ber glæpsamlega ábyrgð“

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands. AFP

Evr­ópuþingið seg­ir að Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti beri glæp­sam­lega og póli­tíska ábyrgð á dauða rúss­neska stjórn­ar­and­stöðuleiðtog­ans Al­ex­ei Navalnís.

Navalní, einn harðasti gagn­rýn­andi Pútíns, lést í fang­elsi þann 16. þessa mánaðar við óljós­ar aðstæður en leiðtog­ar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa kennt Pút­in um dauða hans sem og eig­in­kona og fjöl­skylda.

„Rúss­neska rík­is­stjórn­in og Vla­dímír Pútín bera per­sónu­lega glæp­sam­lega og póli­tíska ábyrgð á dauða áber­andi and­stæðings þeirra, Al­ex­ei Navalnís,“ seg­ir í álykt­un Evr­ópuþings­ins en 506 af þeim 705 sem sitja á þing­inu greiddu at­kvæði með álykt­un­inni. Aðeins níu greiddu á móti.

Að auki óskaði Evr­ópuþingið eft­ir því að 27 aðild­ar­ríki ESB efli stuðning við rúss­neska póli­tíska fanga og haldi áfram að styðja lýðræðis­lega stjórn­ar­and­stöðu í Rússlandi.

Navalní verður jarðsung­inn í suður­hluta Moskvu á morg­un en yf­ir­völd af­hentu loks móður Navalnís lík hans á laug­ar­dag­inn.

Rúss­nesk yf­ir­völd hafa þver­neitað fyr­ir það að bera ábyrgð á dauða Navalnís en þau segja að hann hafi lát­ist af eðli­leg­um or­sök­um eft­ir að hann missti meðvit­und eft­ir göngu­ferð í fanga­ný­lend­unni á norður­slóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert