Á fimmta tug handtekin

Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna útfarar Navalnís.
Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna útfarar Navalnís. AFP/Stringer

Lög­regl­an í Rússlandi hef­ur hand­tekið minnst 45 víðsveg­ar um landið er Rúss­ar syrgja stjórn­ar­and­stæðing­inn Al­ex­ei Navalní sem var lagður til hinstu hvílu í dag. 

Þetta herma heim­ild­ir OVD-Info sam­tak­anna sem fylgj­ast með rétt­inda­brot­um í land­inu.

„OVD-Info hef­ur fengið upp­lýs­ing­ar um fleiri en 45 hand­tök­ur. Flest, átján þeirra, voru hand­tek­in í Novosi­birsk,“ seg­ir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Þar kem­ur jafn­framt fram að sex hefðu verið hand­tek­in í höfuðborg­inni Moskvu, þar sem mik­ill mann­fjöldi hef­ur safn­ast á göt­um úti til að votta Navalní virðingu sína.

Navalní var lagður til hinstu hvílu í dag.
Navalní var lagður til hinstu hvílu í dag. AFP/​Olga Maltseva
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert