Heimsótti gröf sonar síns

Ljúdmíla Navalnaja, móðir Navalnís, og Alla Abrosimova, tengdamóðir Navalnís, við …
Ljúdmíla Navalnaja, móðir Navalnís, og Alla Abrosimova, tengdamóðir Navalnís, við leiðið í dag. AFP/Olga Maltseva

Ljúdmíla Navalnaja heim­sótti gröf son­ar síns, Al­ex­ei Navalní, í Borisovo-kirkju­g­arðinum í Moskvu í Rússlandi í morg­un. Rúss­neski stjórn­ar­and­stæðing­ur­inn var jarðsett­ur í gær. 

Marg­ir höfðu þegar lagt blóm á leiði Navalnís er Ljúdmíla og Alla Abrosimova, tengda­móðir Navalnís, heim­sóttu kirkju­g­arðinn. 

Leiði Navalnís í Borisovo-kirkjugarðinum.
Leiði Navalnís í Borisovo-kirkju­g­arðinum. AFP/​Olga Maltseva

Júlía Navalnaja, ekkja Navalnís, börn þeirra tvö og bróðir Navalnís eru öll bú­sett utan Rúss­lands og voru ekki viðstödd jarðarför­ina þar sem að þau eiga í hættu á að vera hand­tek­in vegna and­stöðu við Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta.

Júlía hef­ur heitið að halda áfram störf­um eig­in­manns­ins og seg­ir Pútín hafa „myrt“ Navalní. 

Blaðamenn AFP-frétta­veit­unn­ar sáu syrgj­end­ur leggja blóm á leiðið í dag en rúss­neska lög­regl­an er enn með viðveru í kirkju­g­arðinum.

Þúsund­ir manna lögðu leið sína í gær að út­för Navalnís og þá voru minn­ing­ar­stund­ir haldn­ar víða um heim.  

Rússneska lögreglan er með viðveru í kirkjugarðinum.
Rúss­neska lög­regl­an er með viðveru í kirkju­g­arðinum. AFP/​Olga Maltseva
Navalnís minnst í Barcelona í gær.
Navalnís minnst í Barcelona í gær. AFP/​Pau Bar­rena
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert