Ekkja Navalnís efnir til mótmæla

Júlía Navalnaja, ekkja Alexei Navalnís, hvetur stuðningsmenn hans að mótmæla …
Júlía Navalnaja, ekkja Alexei Navalnís, hvetur stuðningsmenn hans að mótmæla yfirvöldum í Rússlandi á komandi kjördegi. AFP/Frederick Florin

Júlía Navalnaja, ekkja rúss­neska stjórn­ar­and­stæðings­ins Al­ex­eis Navalnís, hef­ur efnt til mót­mæla á kom­andi kjör­degi í Rússlandi þar sem kosið verður um for­seta Rúss­lands. 

Stefnt er að því að mót­mæla Vla­dimír Pútín, for­seta Rúss­lands, með því að mynda lang­ar raðir fyr­ir utan kjörstaði. 

Ætla að yf­ir­gnæfa kjörstaðina

Navalnaja hef­ur heitið því að halda áfram starfi Navalnís og and­stöðu við yf­ir­völd í Rússlandi, en Navalní lét lífið fyr­ir um mánuði síðan í rúss­neskri fanga­ný­lendu.

Hún birti mynd­band á vefsíðunni YouTu­be fyrr í dag þar sem hún hvatti fólk til þess að troðfylla kjörstaði víðs veg­ar um landið á kom­andi kjör­degi. 

„Við þurf­um að nýta okk­ur þenn­an kjör­dag til þess að sýna fram á að við erum hér og við erum fjöl­menn,“ sagði hún og hélt áfram: 

„Við þurf­um að mæta á sama tíma á sama degi: 17. mars klukk­an 12.00. Hvað skal gera næst? Þú ræður því. Þú get­ur kosið hvaða fram­bjóðenda nema Pútín. Þú get­ur skemmt kjör­seðill­inn þinn. Þú get­ur skrifað nafn Navalnís í stór­um stöf­um.“

Eng­inn al­vöru mót­fram­bjóðandi

Yf­ir­völd í Rússlandi hafa komið í veg fyr­ir raun­veru­legt mót­fram­boð gegn Pútín og bend­ir því allt til þess að hann tryggi sér áfram­hald­andi valda­stöðu í næst­kom­andi kosn­ing­um. 

Dmitrí Peskov, talsmaður yf­ir­valda í Rússlandi seg­ir að yf­ir­völd þar í landi muni ekki sætta sig leng­ur við gagn­rýni Vest­ur­landa á hinu rúss­neska lýðræði. 

„Við mun­um halda þær kosn­ing­ar sem fólkið okk­ar þarf á að halda,“ sagði Peskov.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert