Engar aukaverkanir eftir 217 bólusetningar

Bólusetning við kórónuveirunni.
Bólusetning við kórónuveirunni. AFP/Scott Olson

Þýsk­ur karl­maður sem lét bólu­setja sig gegn Covid-19 217 sinn­um fékk eng­ar auka­verk­an­ir af spraut­un­um.

Þetta kem­ur fram í niður­stöðum rann­sókn­ar sem var gerð á mann­in­um, sem er mögu­lega sá sem oft­ast hef­ur verið bólu­sett­ur í sög­unni.

Ónæmis­kerfi manns­ins, sem er 62 ára frá þýsku borg­inni Mag­deburg, er enn í topp­st­andi, að því er vís­inda­menn greindu frá í tíma­rit­inu The Lancet.

Fram kem­ur að maður­inn hafi óskað sjálf­ur eft­ir svona mörg­um bólu­setn­ing­um, gegn ráðlegg­ing­um lækna, og að rétt sé að vara við því að draga of mikl­ar álykt­an­ir af þessu eina til­felli.

Maður á leið í bólusetningu.
Maður á leið í bólu­setn­ingu. AFP

Maður­inn vakti at­hygli vís­inda­mann­anna, sem eru þýsk­ir, eft­ir að frétt birt­ist árið 2022 um að maður­inn hefði verið bólu­sett­ur 90 sinn­um.

Fjöl­miðlar sögðu mann­inn grunaðan um að hafa farið svona oft í bólu­setn­ingu til að safna bólu­setn­ing­ar­skír­tein­um sem hann gæti síðan falsað og selt fólki sem vildi ekki láta bólu­setja sig.

Sak­sókn­ari í Mag­deburg rann­sakaði málið en það var síðar látið niður falla. Að sögn sak­sókn­ar­ans hafði maður­inn þá verið bólu­sett­ur 130 sinn­um á níu mánuðum.

Núna kveðst maður­inn hafa verið bólu­sett­ur 217 sinn­um með átta mis­mun­andi Covid-bólu­efn­um á 29 mánuðum.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert