Ása heimsækir Rex Heuermann vikulega

Ása Ellerup og börnin hennar Victoria og Christoper.
Ása Ellerup og börnin hennar Victoria og Christoper. Ljósmynd/Gofundme

Ása Ell­erup, eig­in­kona meinta raðmorðingj­ans Rex Heu­er­mann, kveðst heim­sækja Heu­er­mann viku­lega og ætl­ar að leyfa hon­um að njóta vaf­ans.

Þetta kem­ur fram í yf­ir­lýs­ingu frá lög­manni Ásu sem CBS news grein­ir frá.

Haft er eft­ir Ásu að hún hafi samúð með fórn­ar­lömb­un­um og fjöl­skyld­um þeirra. Enn frem­ur er haft eft­ir henni að eng­inn eigi það skilið að deyja á þann hátt sem fórn­ar­lömb­in gerðu.

Rex Heu­er­mann er grunaður um að hafa orðið fjölda kvenna að bana og er ákærður, að svo stöddu, fyr­ir morð á fjór­um kon­um.

Mun meta gögn­in og bíða með að fella sjálf dóm

„Ég mun meta öll sönn­un­ar­gögn og bíða með að fella dóm þar til rétt­ar­höld­un­um lýk­ur,“ er haft eft­ir Ásu.

„Ég hef leyft Rex að njóta vaf­ans, eins og við eig­um öll skilið.“

Ása sótti um skilnað eft­ir að eig­inmaður henn­ar var hand­tek­inn, en lög­fræðing­ar henn­ar tóku þó sér­stak­lega fram að hún heim­sæki Heu­er­mann í hverri viku og tel­ur hann ekki vera fær­an um að fremja þá glæpi sem hann er sakaður um.

Heuermann hefur lýst sig saklausan af ákærunum.
Heu­er­mann hef­ur lýst sig sak­laus­an af ákær­un­um. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert