Taílenska þingið samþykkir hjónabönd samkynhneigðra

Frá gleðigöngu í Bangkok árið 2022.
Frá gleðigöngu í Bangkok árið 2022. AFP/Lillian Suwanrumpha

Taí­lenska þingið samþykkti í dag frum­varp til laga um hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Með lög­un­um yrði ríkið hið fyrsta í Suðaust­ur–Asíu til þess að viður­kenna hjóna­bönd hinseg­in fólks.

Fum­varpið var samþykkt með 399 at­kvæðum gegn tíu í neðri deild þings­ins. Frum­varpið verður nú tekið til at­kvæðagreiðslu í efri deild þings­ins og síðan verður kon­ung­ur Taí­lands að samþykkja það. 

„Í dag sannaði sam­fé­lagið að því er annt um rétt­indi hinseg­in fólks,“ sagði Tunyawaj Kamolwongwat þingmaður sem hef­ur bar­ist fyr­ir rétt­ind­um hinseg­in fólks. 

„Núna höf­um við loks­ins sömu rétt­indi og aðrir.“

Hjón með giftingarvottorð í Taílandi, þrátt fyrir að hjónabönd samkynhneigðra …
Hjón með gift­ing­ar­vott­orð í Taílandi, þrátt fyr­ir að hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra hafa enn ekki verið samþykkt með lög­um. AFP/​Lilli­an Suw­an­rumpha

Í Asíu heim­ila ein­ung­is Taív­an og Nepal hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Hæstirétt­ur Ind­lands fól ind­verska þing­inu að gefa út ákvörðun varðandi málið í októ­ber. 

Í taí­lenska frum­varp­inu er kveðið á um að orðunum, „karl­ar“, „kon­ur“, „eig­in­menn“ og „eig­in­kon­ur“ verði breytt í kynja­hlut­laus orð. 

Ef frum­varpið verður að lög­um munu sam­kynja hjón eiga rétt á arfi og rétt­indi er kem­ur að ætt­leiðing­um í fyrsta sinn í Taílandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert