Bandaríkjamaður greindist með fuglaflensu

Kýr í Texas. Þar hefur fuglaflensa greinst í auknum mæli.
Kýr í Texas. Þar hefur fuglaflensa greinst í auknum mæli. AFP/Scott Olson

Íbúi Texas-rík­is greind­ist með fuglaflensu eft­ir að hafa verið ná­lægt mjólk­ur­kýr, að því er banda­rísk stjórn­völd greindu frá í dag. Hinn smitaði er á bata­vegi. 

Tveir hafa nú greinst með fuglaflensu í Banda­ríkj­un­um í vik­unni nú þegar sjúk­dóm­ur­inn herj­ar á kýr í Texas, Kans­as og fleiri ríkj­um. Talið er að smitið hafi borist með villt­um fugl­um.

„Sjúk­ling­ur­inn sagðist ein­ung­is hafa fundið fyr­ir roða í aug­um. Hann er nú á bata­vegi,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni Banda­ríkj­anna (CDC).

Viðkom­andi var sagt að vera í sótt­kví og fékk lyf við flens­unni.

Í til­kynn­ingu CDC sagði einnig að smitið myndi ekki hækka viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu, en ógn­in er nú met­in sem lág. 

Fyrsti maður­inn til þess að grein­ast með fuglaflensu í Banda­ríkj­un­um var fangi í Col­orado árið 2022. Hann smitaðist vegna sýkts fugla­kjöts. 

Nú­ver­andi fuglaflensu­far­ald­ur byrjaði árið 2020 og hef­ur leitt til dauða tug­millj­óna fugla, bæði villtra og ali­fugla. Hún hef­ur meðal ann­ars borist til Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert