Slökkviliðið í Kaupmannahöfn áætlar að ná að slökkva í síðustu glæðunum í Børsen á morgun.
Viðbragðsaðilar vinna nú að því að bjarga því sem hægt er og tekur því slökkvistarfið lengri tíma en ella.
Byggingin er ein sú sögufrægasta í Kaupmannahöfn en hún var reist á 17. öld í hjarta borgarinnar.
Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Vinna stóð yfir við endurbætur á húsnæðinu, sem átti að ljúka á 400 ára afmæli byggingarinnar, þegar eldurinn kom upp á áttunda tímanum í gærmorgun.
Tókst slökkviliðinu að ná tökum á eldsvoðanum um fjögurleytið í gær. Var þá helmingurinn byggingarinnar brunninn til kaldra kola.
Enn er óljóst hvort byggingin verði endurreist en það er í höndum eiganda hennar, viðskiptaráðs Danmerkur, að skera úr um það.
Fjöldinn allur af málverkum og sögufrægum munum voru í byggingunni þegar eldurinn braust út.
Á myndskeiðum mátti sjá fólk hlaupa inn í brennandi bygginguna og út með muni. Enn er á huldu hvaða verðmætum tókst að bjarga.
Brian Mikkelsen, framkvæmdastjóri viðskiptaráðsins, var einn þeirra sem tók þátt í verðmætabjörguninni.
Að sögn Brians tókst þó að bjarga því allra verðmætasta.
„Ég held að okkur hafi tekist að bjarga því helsta,“ sagði hann í morgun.