Ramon Fonseca látinn

Fon­seca var stofn­andi lögmannastofunnar Mossack Fon­seca.
Fon­seca var stofn­andi lögmannastofunnar Mossack Fon­seca. AFP

Ramon Fon­seca, sem öðlaðist heims­frægð í hneyksl­is­mál­inu tengdu Pana­maskjöl­un­um, er lát­inn 71 árs að aldri.

Fon­seca, sem var ann­ar tveggja stofn­enda lög­manna­stof­unn­ar Mossack Fon­seca, féll frá í nótt á spít­ala í Pana­ma­borg. Lögmaður hans seg­ir við AFP-frétta­veit­una að hann hafi átt við veik­indi að stríða um hríð og hafi þeirra vegna meðal ann­ars ekki mætt fyr­ir dóm í apríl.

Gögn­un­um lekið árið 2016

Gögn­um var lekið úr Mossack Fon­seca árið 2016. Þannig komst upp um fjöl­marga viðskipta­vini Mossack Fon­seca sem nýttu sér af­l­ands­fé­lög til þess að fela fjár­muni sína.

Meðal þeirra sem koma fyr­ir í skjöl­un­um eru Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, sem þá var for­sæt­is­ráðherra, Dav­id Ca­meron, sem þá var for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, arg­entínski knatt­spyrnumaður­inn Li­o­nel Messi og marg­ir aðrir.

Af­leiðing­ar lek­ans hafa verið mis­mun­andi fyr­ir þá sem nýttu sér af­l­ands­fé­lög­in, en eins og þekkt er hrökklaðist Sig­mund­ur úr embætti for­sæt­is­ráðherra vegna máls­ins og þá var Messi fund­inn sek­ur um skattsvik á Spáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert