Heitir því að vernda lýðræði Taívan

00:00
00:00

Ný­kjör­inn for­seti Taív­an, Lai Ching-te, hét því í dag að verja lýðræði eyj­unn­ar sem staf­ar ógn af ná­granna sín­um til vest­urs, Kína. Yf­ir­völd í Kína hafa for­dæmt Lai sem „stór­hættu­leg­an aðskilnaðarsinna“ og sögðu „sjálf­stæði eyj­unn­ar leiða til einskis“.

Lai ávarpaði fjöld­ann við inn­setn­ingu sína í embætti for­seta og sagði já­kvæðar horf­ur í lýðræðis­sögu Taív­an framund­an og hét því að vernda lýðræði eyj­unn­ar. 

Hvet­ur til friðar

„Frammi fyr­ir fjölda ógna frá Kína, þurf­um við að sýna fram á að við get­um varið þjóð okk­ar. Við þurf­um að efla vit­und al­menn­ings um þjóðarör­yggi og styrkja laga­leg­ar for­send­ur okk­ar til sjálfs­varna,“ sagði Lai. 

Lai hvatti einnig yf­ir­völd í Kína til þess að vinna með Taív­an að því að viðhalda friði og stöðug­leika í heim­in­um. Þannig hvatti hann yf­ir­völd í Kína til þess að taka sam­talið frek­ar en að eggja til átaka og hvatti þau til að end­ur­reisa ferðamannaiðnaðinn á milli land­anna tveggja og að leyfa kín­versk­um nem­end­um að stunda nám í Taív­an. 

Klukku­stund­um eft­ir ræðu Lai sögðu yf­ir­völd í Kína „sjálf­stæði eyj­unn­ar leiða til einskis“.

Nýkjörinn forseti Taívan segir jákvæðar horfur í lýðræðissögu landsins.
Ný­kjör­inn for­seti Taív­an seg­ir já­kvæðar horf­ur í lýðræðis­sögu lands­ins. AFP/​Sam Yeh
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert