Frekari ögrun leiðir til hertra aðgerða

Herþota af tegundinni F-16 á flugvelli herstöðvar í Taívan í …
Herþota af tegundinni F-16 á flugvelli herstöðvar í Taívan í morgun. AFP/Yashuyoshi Chiba

Kín­verj­ar segja stjórn­völd í Taív­an vera að ýta eyj­unni út í „háska­legt ástand stríðs og hættu“. Heræf­ing­ar þeirra fara nú fram í kring­um Taív­an.

„Síðan hann tók við embætti hef­ur leiðtogi Taívans ögrað einu meg­in­reglu Kína...og ýtt fé­lög­um okk­ar í Taív­an út í háska­legt ástand stríðs og hættu,“ sagði talsmaður varn­ar­málaráðuneyt­is Kína, Wu Qian, í til­kynn­ingu.

Síðastliðinn mánu­dag sagði nýr for­seti Taívans, Lai Ching-te, þegar hann sór embættiseið að já­kvæðar horf­ur væru í lýðræðis­sögu eyj­ar­inn­ar og hét hann því að verja lýðræði henn­ar. Kín­verj­ar brugðust við með því að efna til heræf­ing­anna. 

Talsmaður­inn varaði einnig við því að mótaðgerðir Kína gegn Taív­an myndu ganga lengra ef stjórn­völd í land­inu halda áfram að tala op­in­ber­lega um sjálf­stæði eyj­ar­inn­ar. 

„Í hvert sinn sem okk­ur er ögrað með „sjálf­stæði Taívans“ þá mun­um við stíga einu skrefi lengra í mótaðgerðum okk­ar þangað til al­gjör sam­ein­ing við föður­landið næst á nýj­an leik,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert