Afríkusambandið fordæmir fjöldamorð í Súdan

Mikið stríð geisar í Súdan.
Mikið stríð geisar í Súdan. AFP

Afr­ík­u­sam­bandið for­dæm­ir harðlega fjölda­morð í þorpi í Súd­an þar sem sagt er að upp­reisn­ar­menn hafi myrt 150 ein­stak­linga, þar á meðal 35 börn.

Moussa Faki Mahamat, fram­kvæmda­stjóri sam­bands­ins, sagði a[ sér væri brugðið yfir því að ástandið í Súd­an héldi áfram að versna. Það hafi nú þegar leitt til mik­ill­ar hung­urs­neyðar í hluta lands­ins og með þessu áfram­haldi myndi hún dreifast vítt og breitt um Súd­an.

Hann biðlaði til stríðsaðil­anna að binda enda á átök­in strax og greiða veg­inn fyr­ir aðgengi mannúðaraðstoðar til íbúa.

Sam­einuðu þjóðirn­ar áætla að um 18 millj­ón­ir manna þjá­ist nú af völd­um hung­urs­neyðar. þar af séu 3,8 millj­ón­ir barna al­var­lega vannærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert