Bjó til „skipulagsskjal“ fyrir morðin

Rex Heuermann er sextugur arkitekt. Hann neitar sök.
Rex Heuermann er sextugur arkitekt. Hann neitar sök. AFP

Á meðal þess sem má finna í máls­gögn­um dóms­máls­ins yfir meinta raðmorðingj­an­um Rex Heu­er­mann er „skipu­lags­skjal“ þar sem má finna leiðbein­ing­ar um hvernig eigi að velja, drepa og losa sig við lík fórn­ar­lamba. 

CNN grein­ir frá því að Word–skjalið hafi verið búið til árið 2000. Því hafi síðan verið breytt af og til yfir nokk­urra ára tíma­bil. Skjalið fannst á hörðum diski í kjall­ara á heim­ili Hu­er­mann í New York-ríki, sem hann deildi með eig­in­konu sinni, Ásu Guðbjörgu Ell­erup, og börn­um þeirra. 

Í há­stöf­um var ritað hvernig ætti að búa um lík til flutn­ings, atriði til að koma í veg fyr­ir hand­töku og hvernig ætti að fjar­lægja DNA af sönn­un­ar­gögn­um. 

Upp­lýs­ing­ar um „skipu­lags­skjalið“ voru gerðar op­in­ber­ar á fimmtu­dag þegar Heu­er­mann lagði fram um­sókn um lausn gegn tygg­ingu eft­ir að hann var ákærður fyr­ir tvö morð til viðbót­ar við þau fjög­ur sem hann var ákærður fyr­ir síðasta sum­ar. 

Eins og leik­ar standa er Heu­er­mann ákærður fyr­ir að myrða sex kon­ur í um þriggja ára­tuga skeið.

Aldrei séð annað eins

Á fimmtu­dag neitaði Heu­er­mann að hafa myrt Jessicu Tayl­or árið 2003 og Söndru Cost­illa árið 1993. 

Sak­sókn­ar­ar greindu þá nán­ar frá „skipu­lags­skjal­inu“ og sögðu að hann hefði notað það til þess að skipu­leggja morðin í smá­atriðum. 

„Ég hef aldrei séð skrif­legt skjal líkt þessu,“ sagði Raymond Tier­ney, sak­sókn­ari í Su­ffolk–sýslu. 

Skjalið fannst eft­ir að rann­sak­end­ur grandskoðuðu meira en 350 raf­tæki sem fund­ust á heim­ili Heu­er­mann. Sam­kvæmt um­fjöll­un CNN var skjalið fullt af staf­setn­ing­ar­vill­um.

„Því hafði verið eytt og við notuðum sér­stak­ar rann­sókn­araðferðir til þess að end­ur­heimta það,“ sagði Tier­ney. 

DNA og skjalið

Í skjal­inu mátti sjá fyr­ir­sagn­ir líkt og „búnaður“ og „vanda­mál“. DNA var efst á lista und­ir síðar­nefndu fyr­ir­sögn­inni. 

DNA og skjalið eru helstu sönn­un­ar­gögn­in í yf­ir­vof­andi rétt­ar­höld­um yfir Heu­er­mann. 

„Staðreynd­in er sú að hann reyndi að losa sig við þetta skjal en það fannst samt í minni tölv­unn­ar. Það er svo sann­ar­lega að fara hitta – ásamt DNA – nagl­ann á höfuðið,“ sagði Casey Jor­d­an, af­brota-, at­ferl­is- og lög­fræðing­ur, í sam­tali við CNN. 

Hann bætti við að þessi tvö sönn­un­ar­gögn eigi eft­ir að gera verj­end­um Heu­er­mann veru­lega erfitt fyr­ir. 

Húsleit var gerð á heimili Ásu Ellerup og Rex Heuermann …
Hús­leit var gerð á heim­ili Ásu Ell­erup og Rex Heu­er­mann síðasta sum­ar. AFP/​Yuki Iwamura

Í skjal­inu mátti einnig finna kafla um „líkund­ir­bún­ing“ þar sem út­skýrt var í smá­atriðum hvernig ætti að þrífa, búta niður og færa til lík. 

Ann­ar hluti var titlaður „eft­ir at­b­urð“ þar sem mátti finna lista yfir nauðsyn­leg verk­efni til þess að koma í veg fyr­ir hand­töku, þar á meðal að út­búa fjar­vist­ar­sönn­un. 

Setti upp tíma­línu

Einn kafli fjallaði um „und­ir­bún­ing fyr­ir und­ir­bún­ing“. Þar var meðal ann­ars minnst á að at­huga hvort eft­ir­lits­mynda­vél­ar væru nærri. 

Þar á eft­ir kom „und­ir­bún­ing­ur­inn“ þar sem sett var upp tíma­lína fyr­ir það sem þyrfti að ger­ast áður en fórn­ar­lamb var myrt. Meðal ann­ars var minnst á að smíða borð með „þver­stöng“ (e. cross bar), svo að borðið gæti tekið við þung­um hlut­um. 

Frá húsleitinni á heimili Heuermann.
Frá hús­leit­inni á heim­ili Heu­er­mann. AFP/​Michael M. Santiago

Lifði í dýrð verka sinna

Í „eft­ir at­b­urð“-hluta skjals­ins mátti finna atriði líkt og að skipta um dekk á bif­reið og að búa til fjar­vist­ar­sönn­un til þess að koma í veg fyr­ir hand­töku. 

Þá var greint frá því í skjal­inu hvernig ætti að losa sig við lík, meðal ann­ars með því að eyða húðflúr­um og öðrum lík­am­leg­um auðkenn­um. Heu­er­mann á að hafa „eytt“ húðflúri eins fórn­ar­lambs­ins með beitt­um hlut. 

Einn kafli skjals­ins nefnd­ist: „Atriði til þess að muna.“ Virðist hann vera byggður á atriðum sem Heu­er­mann lærði af fyrri morðum. Þar var meðal ann­ars mælt með sver­ara reipi þar sem létt­ari reipi „slitnuðu und­ir álagi er þau voru strekkt“.

Scott Bonn, af­brota­fræðing­ur og rit­höf­und­ur, sagði í sam­tali við CNN að „skipu­lags­skjalið“ sýndi löng­un Heu­er­manns til þess að lifa í „dýrð verka sinna“. Þá sagði hann að skjalið gæti orðið það sem yrði Heu­er­mann að falli. 

„Hinar fjór­ar í Gil­go“

Heu­er­mann var hand­tek­inn í júlí nærri skrif­stofu sinni á Man­hatt­an en hann starfaði sem arki­tekt. 

Hann var ákærður fyr­ir morð á þrem­ur kon­um. Lík þeirra fund­ust bund­in með belt­um eða lím­bönd­um og þær vafðar inn í poka á Gil­go–strönd árið 2010. 

Í janú­ar var hann síðan ákærður fyr­ir fjórða morðið. 

Fórn­ar­lömb­in fjög­ur, Mel­issa Bart­helemy, Meg­an Waterm­an, Am­ber Costello og Maureen Brain­ard-Barnes, eru nú þekkt­ar sem „hinar fjór­ar í Gil­go“. Heu­er­mann neit­ar að hafa myrt þær. 

Lík kvennanna þriggja fundust árið 2010 á Gilgo-strönd á Long …
Lík kvenn­anna þriggja fund­ust árið 2010 á Gil­go-strönd á Long Is­land. AFP/​Spencer Platt/​Getty Ima­ges

Hár fund­ust á lík­un­um

Stór áfangi náðist í rann­sókn máls­ins í janú­ar árið 2023 þegar að rann­sak­end­ur tóku líf­sýni úr af­gangspít­su sem Heu­er­mann henti í ruslið fyr­ir utan skrif­stofu sína á Man­hatt­an. DNA-sýnið tengdi hann við hár sem fannst á poka sem Waterm­an fannst í. 

„Ég held að aðal­sönn­un­ar­gagnið sé DNA,“ sagði Tier­ney sak­sókn­ari við CNN á föstu­dag. 

Rann­sókn­ir á hár­um sem fund­ust á eða nærri lík­um Tayl­or og Cost­illa úti­lokuðu teng­ingu við 99,6% Banda­ríkja­manna, Heu­er­mann var ekki þar á meðal. Hárið gæti því hafa verið af hon­um. 

Tvær rann­sókn­ar­stof­ur hafa kom­ist að þeirri niður­stöðu að hár sem fund­ust á fimm af sex fórn­ar­lömb­um tengj­ast Heu­er­mann, ná­skyldri fjöl­skyldu hans eða fólki sem bjó með hon­um.

Ásetn­ing­ur að myrða 

Heu­er­mann er sex­tug­ur og verður ekki lát­inn laus úr haldi fyr­ir rétt­ar­höld í mál­inu. Talið er að hann muni næst koma fyr­ir dóm­ara 30. júlí. 

Michael Brown, verj­andi Heu­er­mann, sagði við fjöl­miðla á fimmtu­dag að hann þyrfti tíma til þess að skoða nýju sönn­un­ar­gögn­in. 

Í janú­ar sagði hann að Heu­er­mann væri sak­laus og að hann hlakkaði til þess að verja Heu­er­mann í rétt­ar­höld­un­um. 

Heuermann er ákærður fyrir sex morð.
Heu­er­mann er ákærður fyr­ir sex morð. AFP/​Michael M. Santiago

Tier­ney sak­sókn­ari vill meina að ásetn­ing­ur Heu­er­manns hafi verið að finna fórn­ar­lömb, elta þau uppi, koma þeim und­ir stjórn hans og drepa þau. 

„Áætl­un hans var eng­in önn­ur en að myrða þessi fórn­ar­lömb.“

Tier­ney sagði að rann­sókn­inni væri hvergi nærri lokið og að mögu­lega yrðu fleiri morð tengd við Heu­er­mann. 

„Við mun­um halda áfram. Við ætl­um ekki að hætta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert