Hunter Biden fundinn sekur

Hunter Biden sést hér yfirgefa dómshúsið í Wilmington í Delaware …
Hunter Biden sést hér yfirgefa dómshúsið í Wilmington í Delaware í gær. AFP

Bandarískur kviðdómur hefur sakfellt Hunter Biden, sem er sonur Joe Biden Bandaríkjaforseta, í máli sem varðar kaup á skotvopnum með ólögmætum hætti. 

Hann var sakaður um að hafa keypt sér skotvopn und­ir áhrif­um fíkni­efna árið 2018 og ólög­lega haft byss­una und­ir hönd­um í 11 daga. Hon­um var einnig gefið að sök að hafa fært inn rang­ar upp­lýs­ing­ar á eyðublöðum sem fylgdu byssu­kaup­un­um þar sem kraf­ist er að viðkom­andi noti ekki ólög­leg fíkni­efni

Hunter Biden.
Hunter Biden. AFP

Biden yngri er 54 ára gam­all og fyrsta barn sitj­andi for­seta til þess að vera sótt til saka.

Ákæran á hendur Biden var í þremur liðum og komst kviðdómurinn að þeirri niðurstöðu að sakfella ætti hann í öllum tilvikum. 

Niðurstaðan ljós eftir þrjár klukkustundir

Fram kemur í umfjöllun AFP-fréttaveitunnar, að það hafi tekið kviðdóminn um þrjár klukkustundir að komast að niðurstöðu. 

Réttarhaldið stóð yfir í eina viku í Wilmington í Delaware, sem er heimabær Bidens. Hann gaf ekki skýrslu fyrir dómi á meðan aðalmeðferðinni stóð. 

Jill Biden, forsetafrú Bandaríkjanna, var viðstödd nokkra daga, en ekki sjálfur forsetinn. Joe Biden hefur þó sagt að hann og Jill séu afar stolt af syni sínum. 

„Sem forseti, þá tjái ég mig ekki, og mun ekki tjá mig, um alríkisdómsmál sem eru í gangi, en sem faðir, þá elska ég son minn skilyrðislaust. Ég hef trú á honum og virði styrk hans,“ hefur Biden látið hafa eftir sér. 

Þetta er ekki eina dómsmálið sem Hunter Biden hefur þurft að glíma við, því hann er einnig sakaður um undanskot frá skatti í Kaliforníu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert