Grískt flutningaskip sætir árásum á Rauðahafi

Flutningaskip hafa ítrekað mátt þola árásir Húta á Rauðahafi frá …
Flutningaskip hafa ítrekað mátt þola árásir Húta á Rauðahafi frá því í nóvember. AFP

Lítið fley hæfði grískt flutn­inga­skip á Rauðahafi, nærri jem­ensku hafn­ar­borg­inni Hodei­dah, í morg­un að ís­lensk­um tíma.

Skipið skemmd­ist við árekst­ur­inn og sök­um tjóns á vél­inni hef­ur áhöfn­in misst stjórn á því. Nú á þriðja tím­an­um bár­ust svo fregn­ir af því að leki væri kom­inn að skip­inu.

Rétt í þessu barst loks kall frá áhöfn­inni, þess efn­is að óþekkt skeyti úr lofti hefði einnig hæft skipið, að því er breska sjó­flutn­inga­stofn­un­in UK­MTO grein­ir frá.

Ber merki um árás upp­reisn­ar­manna

Frétta­veita Reu­ters seg­ir að um sé að ræða flutn­inga­skipið Tutor og hef­ur það eft­ir breska ör­ygg­is­fyr­ir­tæk­inu Ambrey.

Þá er einnig full­yrt að til­vikið beri merki um árás upp­reisn­ar­manna úr röðum Húta í Jemen.

Á leið til Ind­lands

Leki er meðal ann­ars kom­inn að vél­ar­rými skips­ins, sem sigl­ir und­ir líb­erísk­um hentifána, að því er Reu­ters hef­ur eft­ir tveim­ur heim­ild­ar­mönn­um inn­an gríska skipa­flutn­inga­geir­ans.

Skipið var á leið til Ind­lands að sögn heim­ild­ar­manns inn­an gríska flutn­ingaráðuneyt­is­ins.

„Það var hæft tvisvar, úr lofti og af hafi. Eng­ar fregn­ir hafa borist af áverk­um,“ seg­ir emb­ætt­ismaður­inn sem nýt­ur nafn­leynd­ar í um­fjöll­un Reu­ters.

Ítrekaðar árás­ir

Hút­ar, sem ráða lög­um og lof­um í höfuðborg Jem­ens og öðrum þétt­býl­ustu svæðum lands­ins, hafa ít­rekað ráðist gegn alþjóðleg­um skipa­flutn­ing­um í og við Rauðahaf frá því í nóv­em­ber.

Yf­ir­lýst mark­mið árás­anna er samstaða með Palestínu­mönn­um í stríði Ísra­els og Ham­as. Hafa Hút­ar í kjöl­farið mátt þola gagnárás­ir frá herj­um Banda­ríkj­anna og Bret­lands.

Frétt­in hef­ur verið upp­færð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert