28 manns festust á hvolfi í um 30 metra hæð í tívolítæki í skemmtigarði Oregon fylkis í Bandaríkjunum í gær. Sky News greindi frá.
Einn var fluttur á sjúkrahús í varúðarskyni vegna undirliggjandi sjúkdóma. Annars slasaðist enginn en fólkið þurfti hanga á hvolfi í einhverjar mínútur.
Tækið var rétt af af slökkviliðinu í Portland, Oregon og starfsfólki garðsins.
Tækið hefur verið í notkun síðan árið 2021 og var þetta fyrsta óhappið í því. Tækinu verður lokað þangað til annað kemur í ljós.
— Oaks Amusement Park (@Oaks_Park) June 15, 2024