Íslendingurinn sem særðist í nautaati, nærri Alicante á Spáni, er ekki lengur talinn í lífshættu. Vísir greindi fyrst frá þessu.
Atvikið átti sér stað í gær, en að sögn spænska miðlisins El Espanol er líðan hans nú stöðug og dvelur hann nú á spítala í borginni.
Maðurinn hlaut alvarlega áverka á síðu og innra læri, en litlu mátti muna að slagæð hans rofnaði. Læknar sem voru viðstaddir nautaatið brugðust skjótlega við og komst maðurinn fljótt undir læknishendur. Tímabundið hlé var einnig gert á viðburðahaldi vegna slyssins.
Atið fór fram í bænum Jaeva, og er hluti af árlegu bous al carrer-nautahlaupi sem haldið er til heiðurs dýrlingnum Joan af Alicante. Myndband af atvikinu má sjá á vef spænska miðlinsins Xabia.