Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir hörðum bardögum ísraelska hersins gegn vígamönnum Hamas í Rafah, í suðurhluta Gasa, næstum lokið.
Þetta sagði forsætirsáðherrann í viðtali við ísraelsku sjónvarpsstöðina Channel 14 og bætti við að hermenn yrðu fljótlega sendir á norðurlandamærin að Líbanon í „varnaðarskyni“.
„Hinn ákafi áfangi bardaganna gegn Hamas er að líða undir lok,“ sagði hann en árétti um leið að það þýddi ekki að stríðinu væri að ljúka. Einungis þessum áfanga í Rafah.
Til útskýringar sagði hann að þegar þessum ákafa áfanga væri lokið yrði hægt að endurskipuleggja herliðin og senda einhver þeirra til norðurs. Það væri fyrst og fremst gert í varnaðarskyni en jafnframt til þess að þeir íbúar sem hafa verið á flótta kæmust aftur heim.
Þá sagði Netanjahú að hann myndi ekki samþykkja neinn samning sem kvæði á um að stríðinu á Gasa yrði hætt. Þessi orð hans gefa til kynna að hann sé opinn fyrir samkomulagi sem yrði til þess að einhverjir gíslar Hamas-hryðjuverkasamtakanna yrðu látnir lausir, ef ekki allir.
„Markmiðið er að skila gíslunum heim og uppræta Hamas-stjórnina á Gasa,“ sagði hann.
Bandarískir embættismenn hafa lýst efasemdum sínum um markmið Ísraela um að gjöreyða Hamas. Þá sagði Daniel Hagari, talsmaður Ísraelshers, á miðvikudag, að ekki væri hægt að útrýma Hamas.
„Að halda því fram að við ætlum að láta Hamas hverfa er eins og að kasta sandi í augu fólks,“ sagði Hagari og útskýrði að Hamas væri hugmyndafræði.
„Við getum ekki útrýmt hugmyndafræði.“
Spurður um ástandið á Gasa eftir stríð sagði Netanjahú að Ísraelar hefðu hlutverki að gegna á næstunni. Þá sagði hann jafnframt ljóst að Ísrael færi með herstjórn á svæðinu í fyrirsjáanlegri framtíð.