Rússar segja Bandaríkjamenn ábyrga fyrir flugskeytaárás Úkraínumanna á Sevastópol á Krímskaga í gær. Þeir segja fjóra hafa látist í árásinni, þar af tvö börn, og yfir hundrað særst.
Flugskeytið sprakk fyrir ofan strönd Sevastópol, hafnarborg við Svartahaf og flotastöð á Krímskaga sem Rússar innlimuðu árið 2014, og segja rússneskir embættismenn að sprengjum hafi rignt yfir fólk sem slakaði þar á.
Í yfirlýsingu rússneska varnarmálaráðuneytisins segir að Bandaríkin og Úkraína beri „ábyrgð á vísvitandi eldflaugaárás á friðsæla íbúa“, með bandarískum ATACMS-eldflaugum.
Míkhaíl Rasvosjajev, ríkisstjóri Sevastópol, sagði í myndbandi á Telegram að þrjú börn og tveir fullorðnir hefðu látist í árásinni auk þess sem næstum 120 hefðu særst.
Hann hefur þó leiðrétt sig og segir nú að fjórir einstaklingar hafi látist, 151 hafi þurft að leita læknisaðstoðar og 82 hafi verið lagðir inn á sjúkrahús.