Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) fer fram á handtökuskipan á hendur Valerí Gerasímov, yfirmanni herráðs Rússlands, og Sergei Shoígú, fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins.
Ástæðan eru meintir stríðsglæpir þeirra tveggja með því að hafa beint árásum rússneska hersins að almennum borgurum í Úkraínu og innviðum þar í landi, til að mynda raforkukerfi landsins.
Handtökuskipunin er einnig gefin út vegna glæpa gegn mannkyninu og fyrir „ómannúðlega gjörninga“ í Úkraínu, að því er segir í tilkynningu ICC.