Inga Þóra Pálsdóttir
Ríkissaksóknari í Danmörku hefur ákært níu manns fyrir að fagna hryðjuverkum Hamas þann 7. október.
Danska ríkisútvarpið og BT greina frá.
Áfrýjunardómstóll í Danmörku hefur tekið eitt málanna fyrir. Þar er áhrifavaldurinn Ahmad Elchaabi ákærður fyrir að hafa fagnað hryðjuverkunum á samfélagsmiðlinum Snapchat. Búist er við niðurstöðu dómsins í dag.
Í febrúar var áhrifavaldurinn dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir athæfið. Ákæruvaldið áfrýjaði dómnum í von um að dæmd yrði þyngri refsing, en Elchaabi krefst sýknu.
Elchaabi fagnaði hryðjuverkunum meðal annars í myndbandi sem má sjá hér að neðan.
Þar segir hann: „Það býr fólk þarna sem enn er ósnert. En 250 stykki er ekki slæmt,“ og brosir og dansar á meðan spiluð er tónlist í bakgrunni.
Den dansk-arabiske influencer Ahmarni fejrer terrorangrebet mod Israel;
— Eli Firat Celik (@FiratCelik) October 15, 2023
‘Der bor folk dernede, som stadig ikke er blevet flækket, men 250 stykker - det er ikke helt dumt,’ siger Ahmarni, akkompagneret med dans. #dkpol #dkmedier #israel pic.twitter.com/ZYhFy6NXzx