Ný samsteypustjórn í Suður-Afríku hefur lofað einingu í landinu. Afríski þjóðarflokkurinn (ANC) missti meirihluta á suðurafríska þinginu í þingkosningum sem fóru fram í lok maí. Flokkurinn hafði verið með hreinan meirihluta í þrjátíu ár.
ANC heldur 20 af 32 ráðuneytum. Lýðræðisbandalagið, sem er stærsti samherji ANC, fær sex ráðuneyti. Flokkarnir hafa staðið í stöngum viðræðum síðustu vikur.
„Tími samvinnunnar er kominn,“ sagði John Steenhuisen, 48 ára, leiðtogi Lýðræðisbandalagsins, við fjölmiðla í dag.
Lýðræðisbandalagið er miðjuflokkur sem hallar sér til hægri. Vinstri flokkar sóttust einnig eftir því að vinna með ANC.