Ísraelsher fyrirskipaði enn og aftur rýmingu hluta af suðurhluta Gasa i dag í kjölfar eldflaugaárásar sem herskáu samtökin Heilagt stríð (e. Islamic Jihad) hafa gert tilkall til.
Ísraelski herinn sagði að um „20 eldflaugar hafi verið auðkenndar á leið frá Khan Yunis-svæðinu“ í suðurhluta Gasa.
Eldflaugunum var beint að ísraelskum bæjum nálægt landamærunum að Palestínu og var skotið á loft í hefndarskyni fyrir „glæpi Ísraela [...] gegn palestínska fólkinu okkar“, sagði Al-Quds herdeildin í tilkynningu.
Ísraelski herinn segir að flest skotin hafi verið stöðvuð og að ekkert manntjón hafi orðið.
Þessu fylgdi skipun um að rýma Al-Qarara, Bani Suhaila og fleiri bæi í Rafah og Khan Yunis, næstum tveimur mánuðum eftir fyrstu skipun um að rýma Rafah fyrir sókn á jörðu niðri.