Barir og kaffihús í frönsku höfuðborginni París verður leyft að hafa opið allan sólarhringinn fyrir opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna.
Frá þessu greindu yfirvöld í París í dag en Ólympíuleikarnir verða settir með bátsskrúðgöngu á ánni Signu þann 26. júlí og þeim lýkur með sama hætti þann 11. ágúst.
Sama undantekning frá leyfisreglum verður gerð fyrir opnun Ólympíumóts fatlaðra 28. ágúst og lokahátíðina 8. september.
Í París eru um 15 þúsund barir sem margir hverjir loka í ágústmánuði vegna sumarfría undir venjulegum kringumstæðum.