Hisbollah-samtökin í Líbanon, sem styðja hryðjuverkasamtökin Hamas, segjast hafa skotið fleiri en 200 eldflaugum og drónum á herstöðvar ísraelska hersins í dag.
Ísraelar hafa ekki tilkynnt um nein dauðföll í tengslum við árásina.
Hisbollah-samtökin gera þessa árás í hefndarskyni vegna árásar Ísraela sem varð Mohammed Naameh Nasser, háttsettum yfirmanni samtakanna, að bana í gær.
Í yfirlýsingu segist ísraelski herinn hafa í kjölfar árásanna í dag gert árásir á suðurhluta Líbanon.