Fjórði Svíinn sem var dæmdur til dauða í Írak í síðasta mánuði er 35 ára gamall karlmaður. Hann hlaut dóminn vegna fíkniefnabrots.
Sænska ríkisútvarpið greinir frá.
Þrír aðrir Svíar fengu dauðadóm í Írak í síðasta mánuði, en þeir dómar tengjast öðru máli. Þeir voru sakfelldir fyrir morðið á Mustafa „Benzema“ Aljiburi sem var leiðtogi sænsku glæpsamtakanna Foxtrot. Sænsk stjórnvöld hafa mótmælt refsingunni.
Ættingjar mannsins segja við sænska ríkisútvarpið að hann hafi játað brotið vegna pyntinga. Þeir segja manninn hræddan og hann vilji koma heim til Svíþjóðar.
Sænska ríkisútvarpið hefur dóminn undir höndum. Í honum kemur fram að maðurinn og tveir aðrir hafi fundist með rúmlega 300 grömm af kannabisi í vörslum sínum í höfuðborg Íraks, Bagdad.
Maðurinn hafði ferðast til Íraks í frí í desember. Skömmu síðar missti fjölskylda hans í Svíþjóð allt samband við hann. Maðurinn er með tvöfalt ríkisfang, sænskt og íraskt. Hann hefur áður verið dæmdur fyrir minniháttar afbrot í Svíþjóð.