Í það minnsta 11 eru látnir og 19 er saknað eftir að mikil rigning olli aurskriðu á eyjunni Sulawesi í Indónesíu.
Skriðan féll í afskekktu þorpi í Bone Bolango-héraði í Gorontalo-héraði seint á laugardag eftir úrhellisrigningu.
Að minnsta kosti 11 létu lífið og á annan tug manna er saknað eftir hamfarirnar. Nokkrar brýr á svæðinu hrundu og þurftu björgunarmenn að ferðast fótgangandi við afar erfiðar aðstæður að slysstaðnum.
Hátt í 200 björgunarmenn, þar á meðal lögreglan og hermenn, hafa verið sendir á svæðið. Skriðuföll eru algeng í Indónesíu á regntímanum milli nóvember og apríl en í júlí er venjulega þurrkatíð og miklar rigningar eru sjaldgæfar.