Rússar vilja handtaka ekkju Navalnís

Júlía Navalnaja, ekkja Alexei Navalnís.
Júlía Navalnaja, ekkja Alexei Navalnís. AFP

Rúss­nesk­ur dóm­stóll hef­ur gefið út hand­töku­skip­un á hend­ur Júlíu Navalnaja, ekkju rúss­neska stjórn­ar­and­stæðings­ins Al­ex­eis Navalnís. Dóm­stóll­inn í Moskvu seg­ir hana taka þátt í „öfga­sam­tök­um“.

Navalnaja hef­ur heitið því að halda áfram starfi Navalnís og and­stöðu við yf­ir­völd í Rússlandi, en Navalní lét lífið fyrr á ár­inu í rúss­nesku fang­elsi. Rúss­ar bönnuðu and­stöðuhreyf­ing­ar Navalnís heit­ins og skil­greindu þær sem öfga­sam­tök sem voru sett á hryðju­verkalista.

„Vla­dimír Pútín er morðingi og stríðsglæpa­maður. Hann á heima í fang­elsi,“ skrifaði Júlía á sam­fé­lags­miðlum í gær í kjöl­far þess að hand­töku­skip­un­in var gef­in út.

For­dæm­ir hand­töku­skip­un­ina

Hún er ekki bú­sett í Rússlandi og má því gera ráð fyr­ir því að hún yrði hand­tek­in ef hún kæmi til lands­ins.

Olaf Scholz, kansl­ari Þýska­lands, for­dæmdi hand­töku­skip­un­ina harðlega á sam­fé­lags­miðlum.

„Hand­töku­skip­un­in gegn Júlíu Navalnaja er hand­töku­skip­un gegn þránni fyr­ir frelsi og lýðræði,“ skrifaði Scholz á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert