Lofar Biden en lýsir ekki yfir stuðningi við Harris

Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti.
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti. AFP

„Joe Biden hef­ur verið einn áhrifa­mesti for­seti í sögu Banda­ríkj­anna, auk þess sem hann er kær vin­ur minn og fé­lagi. Í dag höf­um við einnig verið minnt á, aft­ur, að hann er föður­lands­sinni af bestu gerð.“

Þetta seg­ir Barack Obama, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, í nýrri yf­ir­lýs­ingu.

Hrós­ar hann Biden og nefn­ir ýmis af­rek sem hann tel­ur hafa náðst í for­setatíð Bidens.

Seg­ir Obama meðal ann­ars að Biden hafi hjálpað til við að binda enda á heims­far­ald­ur Covid-19, skapað millj­ón­ir starfa, lækkað kostnað við lyf­seðils­skyld lyf og samþykkt fyrstu stóru skot­vopna­ör­ygg­is­lög­gjöf lands­ins í 30 ár.

„Meira en það – Biden for­seti beindi okk­ur frá fjög­urra ára glundroða, lyg­um og sundr­ung sem hafði ein­kennt rík­is­stjórn Don­ald Trump,“ seg­ir Obama.

Eng­in stuðnings­yf­ir­lýs­ing

Að sögn Obama mun Demó­krata­flokk­ur­inn sigla um óþekkt höf næstu daga.

„En ég hef mikla trú á að leiðtog­ar flokks­ins geti skapað ferli sem leiðir til framúrsk­ar­andi fram­bjóðanda,“ seg­ir for­set­inn fyrr­ver­andi.

At­hygli vek­ur að ekki kem­ur fram í yf­ir­lýs­ing­unni hvort Obama lýsi yfir stuðningi við Kamölu Harris eins og Biden sjálf­ur og marg­ir aðrir demó­krat­ar hafa gert.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert