George Clooney lýsir yfir stuðningi við Harris

Clooney styður Kamölu Harris heilshugar.
Clooney styður Kamölu Harris heilshugar. AFP/Getty Images/Dia Dipasupil

Banda­ríski leik­ar­inn Geor­ge Cloo­ney hef­ur lýst yfir stuðningi við við Kamölu Harris sem for­seta­efni Demó­krata­flokks­ins. Þetta ger­ir hann í yf­ir­lýs­ingu til CNN og í kjöl­farið þakkaði hann Joe Biden Banda­ríkja­for­seta fyr­ir að hafa dregið fram­boð sitt til baka. 

„Biden hef­ur sýnt okk­ur hvað sann­ur leiðtogi er. Hann er að bjarga lýðræðinu enn og aft­ur. Við erum svo spennt að gera allt sem við get­um til að styðja Harris vara­for­seta í sögu­legri veg­ferð sinni,“ sagði leik­ar­inn í yf­ir­lýs­ing­unni. 

Dygg­ur stuðnings­maður flokks­ins

Fyr­ir rúmri viku birti Cloo­ney skoðana­grein á vef The New York Times þar sem hann hvatti Biden til að draga fram­boð sitt til baka. Cloo­ney er demó­krati og hef­ur haldið ýmsa fjár­mögn­un­ar­viðburði fyir Demó­krata­flokk­inn í gegn­um árin. 

Í grein Cloo­ney seg­ir hann Biden hafa unnið marga sigra, en að hann sé ekki sami maður og hann var þegar hann bauð sig fram til for­seta árið 2020. Það hafi sést í fyrstu kapp­ræðunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert