Hannah Hunt var myrt ásamt systur sinni og móður í hrottalegri árás á heimili þeirra í byrjun mánaðar í Bretlandi. Hún lést af sárum sínum en þegar lögregla mætti á vettvang var hún enn á lífi, með ör úr lásboga í bringunni.
Telegraph greinir frá.
Árásin gerðist í húsi í Bushey í Hertfordskíri. Eins og fyrr segir voru konurnar mæðgur, Carol Hunt, sem var 61 árs gömul og tvær dætur hennar, Hannah, 28 ára, og Louise, 25 ára.
Carol var stungin til bana á meðan dæturnar voru skotnar til bana með lásboga.
Málið vakti mikla athygli en eiginmaður Carol og faðir systranna er John Hunt sem hefur fjallað um veðreiðar fyrir breska ríkisútvarpið BBC.
Á meðan árásinni stóð náði Hannah Hunt að senda skilaboð á kunningja og biðja um hjálp. Í skilaboðunum sagði hún að búið væri að binda hana niður og bað hún kunningjann um að hringja á lögregluna og láta vita að árásarmaðurinn væri enn í húsinu.
Hannah Hunt tókst að hringja í neyðarlínuna og í símtalinu sagði hún að hún að mæðgurnar hefðu verið skotnar.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir hana í anddyrinu á lífi með ör í bringunni, en hún lést fljótlega af sárum sínum.
Kyle Clifford, 26 ára gamall karlmaður, var handtekinn innan við sólarhring eftir árásina, grunaður um verknaðinn.
Hann var með ýmsa áverka á sér þegar lögreglan handtók hann og er hann enn að jafna sig á þeim. Talið er að hann hafi sjálfur veitt sér áverkana.