Ísraelsher segir að þeim hafi tekist að fella Fuad Shukr, háttsettan foringja í hryðjuverkasamtökunum Hisbollah, í loftárás á Beirút, höfuðborg Líbanons. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, segir Ísrael hafa fullan rétt til sjálfsvarnar.
Fjölmiðlar vestanhafs höfðu fyrr í kvöld greint frá því að samkvæmt heimildarmönnum, með tengsl við Hisbollah, hefði Shukr komist lífs af.
Ísraelski herinn segir Shukr bera ábyrgð á loftárás þar sem 12 börn voru drepin í bæ á Gólanhæðum í síðustu viku. Bandaríkin og Ísrael segja Hisbollah bera ábyrgð á árásinni en Hisbollah hafna því.
Kamala Harris, væntanlegur forsetaframbjóðandi demókrata, sagði við blaðamenn í kjölfar árásarinnar að hún styddi rétt Ísraels til að verja eigin borgara.
„Við vitum það sérstaklega að Ísraelar hafa rétt til að verjast hryðjuverkasamtökum, sem er nákvæmlega það sem Hisbollah er,“ sagði Harris við blaðamenn áður en hún hélt á kosningafund í Atlanta-borg í Georgíu-ríki.
„En að öllu þessu sögðu verðum við samt að vinna að diplómatískri lausn til að binda enda á þessar árásir og við munum halda áfram að vinna að því.“
Rússland, Íran og Írak hafa fordæmt Ísrael fyrir árásina ásamt hryðjuverkasamtökunum Hamas og uppreisnarhópi Húta í Jemen.
Daniel Hagari, talsmaður ísraelska hersins, sagði Ísrael ekki vilja stigmagna átökin en varaði þó við því að Ísraelsmenn væru reiðubúnir öllu.
„Viðvarandi ógnun og hrottalegar árásir Hisbollah eru að draga íbúa Líbanons og miðausturlanda í víðari átök,“ sagði Daniel Hagari og bætti við:
„Þótt við viljum leysa fjandskap án víðtækara stríðs er Ísraelsher fullkomlega reiðubúinn fyrir hvers kyns atburðarás,“ sagði hann.
Fuad Shukr hefur leitt aðgerðir Hisbollah gegn Ísrael í suður Líbanon, hvar Hisbollah hefur ítrekað stundað árásir á Ísrael síðan 7. október til stuðnings hryðjuverkasamtökunum Hamas.
Samkvæmt utanríkisráðuneytinu lék hann lykilhlutverk í sprengjuárás á bandaríska herstöð í Beirút árið 1983 þar sem 241 bandarískur hermaður var drepinn.