Navalní átti að vera hluti af fangaskiptunum

Alexei Navalní lést í rússnesku fangelsi.
Alexei Navalní lést í rússnesku fangelsi. AFP

Á sama tíma og mik­ill fögnuður rík­ir vest­an­hafs í kjöl­far um­fangs­mik­illa fanga­skipta þá er ein eft­ir­sjá.

Rúss­neski stjórn­ar­and­stæðing­ur­inn Al­ex­ei Navalní átti að vera hluti af fanga­skipt­un­um áður en hann lést í rúss­neskri fanga­ný­lendu í Síberíu.

„Við höfðum verið að vinna að samn­ingi [fanga­skipt­um] með banda­mönn­um okk­ar sem Al­ex­ei Navalní hefði verið hluti af, en því miður lést hann,“ sagði Jake Sulli­v­an, þjóðarör­ygg­is­ráðgjafi Joe Bidens Banda­ríkja­for­seta.

Navalní átti að vera hluti af fanga­skipt­un­um í gær sem voru þau stærstu á milli Vest­ur­landa og Rúss­lands frá tím­um kalda stríðsins. Rúss­ar slepptu sex­tán úr haldi gegn því að fá tíu til baka.

Navalní var áhrifamesti stjórnarandstæðingurinn í Rússlandi fyrir andlát sitt.
Navalní var áhrifa­mesti stjórn­ar­and­stæðing­ur­inn í Rússlandi fyr­ir and­lát sitt. AFP/​Al­ex­and­er Nemenov

Sagði að hann væri til í að sleppa Navalní

Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti sagði í mars, í kjöl­far and­láts Navalnís, að hann hefði verið reiðubú­inn til þess að láta Navalní laus­an úr fang­elsi í fanga­skipt­um við Vest­ur­veld­in.

„Nokkr­um dög­um fyr­ir and­lát herra Navalnís, bar sam­starfs­fólk mitt und­ir mig þá hug­mynd að láta Navalní laus­an í staðinn fyr­ir ein­hvern sem er í fang­elsi á Vest­ur­lönd­um. Ég sagðist vera sam­mála þeirri hug­mynd,“ sagði Pútín í mars.

Yulie Navaln­ía, ekkja Navalnís, sagði í kjöl­far and­láts­ins að Pútín hefði drepið Navalní. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka