Vígasveitar hliðhollar írönskum stjórnvöldum skutu nú fyrir skömmu fjölda eldflauga að Ain al-Assad-herstöðinni í Írak, þar sem bandarískar hersveitir halda til.
Árásin á herstöðina kemur í kjölfar loftárásar Bandaríkjahers þar sem fjórir vígamenn hliðhollir Írönum féllu.
Einhverjar eldflaugar höfnuðu innan herstöðvarinnar, en að sögn AFP fréttastofunnar, sprakk að minnsta kosti ein eldflaugin í nærliggjandi þorpi, þó að ekki sé talið að neinn hafi fallið í árásinni.
Óljóst er hver nákvæmlega stóð að baki árásinni, en enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á henni. Árásir sem þessi hafa þó færst í aukana eftir að átökin milli Ísraels og hryðjuverkasamtakanna Hamas hófust í október síðastliðnum. Margir óttast nú að Íranar muni beina spjótum sínum að Ísrael þar sem þeir hafa heitið því að hefna fyrir morðin á æðstu leiðtogum Hamas og Hisbollah.
Íslamskar hryðjuverkahreyfingar í Írak eru sem fyrr segir í lauslegu bandalagi við fleiri hópa sem hliðhollir eru Íran, en þær hafa réttlætt árásir sínar á grundvelli samstöðu með Palestínumönnum á Gasa.
Í janúar létust þrír bandarískir hermenn í drónaárás á herstöð í Jórdaníu, en í hefndarskyni hófu bandarískar hersveitir umfangsmiklar gagnárásir gegn vígahreyfingum íranskra stjórnvalda.
Síðan þá hefur dregið úr árásum á bandaríska hermenn á átaksvæðum í Mið-Austurlöndum, en um 2.500 bandarískir hermenn eru í Írak og 900 í Sýrlandi.