Tölvuárás í París

Keppendur í þríþraut hjóluðu fram hjá Grand Palais í París …
Keppendur í þríþraut hjóluðu fram hjá Grand Palais í París í dag. AFP/Mauro Pimentel

Grand Palais, staðarhaldari fyrir ólympíuviðburði í París, og 40 önnur söfn í Frakklandi, þar á meðal Louvre, urðu fyrir tölvuárás um helgina, að því er AFP-fréttaveitan hefur eftir heimildamönnum innan lögreglu.

Tölvuglæpamenn beindu spjótum sínum að kerfum sem notuð eru til þess að „miðstýra fjárhagslegum gögnum“ hjá ýmsum stofnunum, á laugardagskvöldið.

Tölvuþrjótarnir kröfðust lausnarfjár og hótuðu að gera opinber fjármálagögn hjá stofnunum, en rannsókn stendur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert