Mohammed Shahabuddin, forseti Bangladess, hefur fyrirskipað að Khaleda Zia, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, og leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu, verði látin laus.
Gerist þetta skömmu eftir að Sheikh Hasina, forsætisráðherra Bangladess, flúði land til Indlands í kjölfar þess að hún sagði af sér í gær. Blóðug mótmæli hafa staðið yfir í Bangladess undanfarnar vikur.
„Hún er nú frelsuð,“ segir K.M Wahiduzzaman, talsmaður Þjóðflokksins í Bangladess, við AFP í dag. Stjórnarandstæðingurinn var fangelsaður árið 2018 vegna meintrar spillingar en Þjóðfylkingin hefur haldið því fram að málið sé uppspuni yfirvalda í landinu.
Forsetinn ákvað einnig að frelsa alla sem handteknir höfðu verið í mótmælum í landinu.
Í gær tilkynnti herinn í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar að forsætisráðherrann hefði sagt af sér. Waker-uz-Zaman tilkynnti þar einnig að herinn myndi gegna hlutverki bráðabirgðaríkisstjórnar.
„Hverjar sem ykkar kröfur eru munum við uppfylla og endurheimta frið í landinu. Við biðjum ykkur um að hjálpa okkur í þessu og forðist ofbeldi.“
409 manns hafa látið lífið í blóðugum mótmælum sem haldin hafa verið víðs vegar um Bangladess síðustu tvær vikurnar, samkvæmt talningu AFP sem byggir á tölum frá yfirvöldum og sjúkrahúsum í landinu. Þar af létust 109 í gær.
Indversk stjórnvöld gáfu frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem þau lýstu „þungum áhyggjum“ af ástandinu í landinu.
Námsmenn í Bangladess kröfðust þess að kvótakerfi stjórnvalda yrði lagt niður en kerfið veitir ákveðnum hópum samfélagsins greiðari aðgang að rúmlega helmingi opinberra starfa.
Um 30% af þessum eftirsóttu störfum eru ætluð ættingjum hermanna sem börðust í sjálfstæðisbaráttu Bangladess gegn Pakistan árið 1971.
„Búið er að frelsa okkur undan einræði. Þetta er Bengal-uppreisn, það sem við sáum árið 1971 og erum nú að sjá árið 2024,“ sagði hinn 21 árs Sazid Ahnaf við AFP í gær, er mótmælendur réðust inn í glæsihöll fyrrverandi forsætisráðherrans.
Margir úr svokallaðri stjórnmálaelítu landsins eru skyldir þessari kynslóð, þar á meðal Sheikh Hasina forsætisráðherra sem er dóttir sjálfstæðishetjunnar Sheikh Mujibur Rahman, sem var myrtur árið 1975.