39 ára gamall læknir í Berlín er í haldi grunaður um að hafa orðið fjórum konum að bana á aldrinum 72 til 94 ára og kveikt í húsum þeirra.
Læknirinn veitti líknarmeðferð fyrir hjúkrunarþjónustu. Er hann sakaður um að hafa kveikt í húsum kvennanna til að hylma yfir glæpi sína.
Er hann sagður hafa framið glæpina á tímabilinu 11. júní til 24. júlí. Á hann yfir höfði sér ákærur fyrir manndráp, íkveikju og tilraun til íkveikju.