Tveir létu lífið og sjö slösuðust þegar gólf í þýsku hóteli í bænum Kröv gaf sig. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi og þrír eru enn fastir í rústunum.
Ekki er vitað hvað varð til þess að gólfið féll en fjórtán voru á hótelinu þegar atburðurinn gerðist.
Fimm náðu að koma sér undan og tókst viðbragðsaðilum að bjarga karlmanni, barni og tveimur konum úr rústunum sem hlutu öll minniháttar meiðsl.
Þrír eru enn fastir í rústunum og eru þeir taldir meira slasaðir.