Þrír látnir eftir hnífaárás í Þýskalandi

Maðurinn er talinn hafa komist á flótta og stendur nú …
Maðurinn er talinn hafa komist á flótta og stendur nú yfir víðtæk leit að honum. AFP/Ina Fassbender

Þrír eru látn­ir og fjór­ir særðir eft­ir að maður réðst á fólk með hníf á bæj­ar­hátíð í Sol­ingen í Þýskalandi. 

Talsmaður lög­regl­unn­ar í Düs­seldorf, sem er næsta sveit­ar­fé­lag við Sol­ingen, seg­ir lög­regl­una hafa ráðist í víðtæka leit að hinum grunaða. Komst hann á flótta und­an lög­reglu. Er fólk á svæðinu hvatt til þess að halda sig fjarri á meðan leit lög­reglu stend­ur yfir. 

Verið var að halda upp á 650 ára af­mæli Sol­ingen er árás­in var gerð. 

Lögreglan leitar mannsins á stóru svæði.
Lög­regl­an leit­ar manns­ins á stóru svæði. AFP/​Ina Fass­bend­er
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert